Það er ekki mikið sem sjálfstæðismenn geta verið stoltir af núna!Bjarney Gunnarsdóttir
Eftirfarandi klausa er tekin af vef XD manna og vil ég kommenta á nokkur atriði þar á þessum nýju tímum núna sem Sjálfstæðisflokkurinn vill meina að sé byggður á TRAUSTUM grunni...ég held að þetta sé meiri LOFT grunnur sem hafi verið byggður á valdatíð XD...allavegana er hann að mestu hruninn núna. Það er kannski svona sem Sjálfstæðismenn skilja orðið TRAUST....eða hvað???
Útskýring: Ég er rauð....XD eru bláir
Sjálfstæðismenn ganga nú til kosninga stoltir af verkum sínum og
fullir tilhlökkunar til að takast á við áskoranir nýrra tíma. Traustur
grunnur hefur verið lagður. Efnahagslífið hefur aldrei verið öflugra.
Skattar hafa verið lækkaðir, staða ríkisfjármála er sterkari en nokkru
sinni og velferðarkerfið hefur verið styrkt í sessi. =Allt farið!
Mörg spennandi verkefni eru framundan og viljum við vinna áfram fyrir landsmenn á þeim grunni sem lagður hefur verið.
Framundan eru nýjar áskoranir, ný tækifæri – nýir tímar.
Traustur grunnur
- erlendar skuldir ríkissjóðs hafa verið greiddar upp = eru meiri nú en nokkru sinni
- skattar hafa verið lækkaðir á einstaklinga og fyrirtæki = verða eflaust hækkaðir aftur
- háskólanemum hefur fjölgað úr 7.500 í 17.000 á síðustu 12 árum = gott mál
- hagur heimilanna hefur almennt batnað um 60% frá árinu 1995 = mér skilst að við hverfum aftur til ársins 1994
- atvinnuleysi sem áður var mikið vandamál er nú svo að segja óþekkt = verður meira en mikið vandamál
- opinber framlög til heilbrigðismála hafa verið stóraukin og eru nú með með þeim hæstu í heiminum = gott mál
- Ísland er komið í 2. sæti á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem lífskjör eru best í heiminum = ætli við náum topp 10 núna?
Nýir tímar
- á traustum grunni byggjum við frekari framfarir, tryggjum fleiri tækifæri og örugga velferð = þar skjátlaðist ykkur hrapalega
- bætum hag aldraðra með því að minnka tekjutengdar skerðingar á lífeyri = lífeyrinn er að miklu leyti horfinn
- tryggjum að hér sé skattaumhverfi fyrirtækja og einstaklinga fyllilega samkeppnishæft við önnur lönd = hmm
- eflum samgöngur um allt land með stórátaki í uppbyggingu vega og annarra samgöngumannvirkja = flott
- stuðlum að uppsprettu nýrra tækifæra með góðri og fjölbreyttri menntun, vísinda- og rannsóknastarfi = flott
- nýtum forskot okkar á aðrar þjóðir, íslenska sérþekkingu og hugvit, á sviði endurnýjanlegra orkugjafa = no comment
En ég ætla að vona að ÍSLENDINGAR gleymi ALDREI þessari aðstöðu sem Sjálfstæðismenn hafa komið landanum í!!!!
