Styð þetta!Bjarney Gunnarsdóttir

Burt með ránfuglinn

Það er ekki mikið sem sjálfstæðismenn geta verið stoltir af núna!Bjarney Gunnarsdóttir

Eftirfarandi klausa er tekin af vef XD manna og vil ég kommenta á nokkur atriði þar á þessum nýju tímum núna sem Sjálfstæðisflokkurinn vill meina að sé byggður á TRAUSTUM grunni...ég held að þetta sé meiri LOFT grunnur sem hafi verið byggður á valdatíð XD...allavegana er hann að mestu hruninn núna. Það er kannski svona sem Sjálfstæðismenn skilja orðið TRAUST....eða hvað???


Útskýring: Ég er rauð....XD eru bláir

 

Sjálfstæðismenn ganga nú til kosninga stoltir af verkum sínum og fullir tilhlökkunar til að takast á við áskoranir nýrra tíma. Traustur grunnur hefur verið lagður. Efnahagslífið hefur aldrei verið öflugra. Skattar hafa verið lækkaðir, staða ríkisfjármála er sterkari en nokkru sinni og velferðarkerfið hefur verið styrkt í sessi. =Allt farið!

Mörg spennandi verkefni eru framundan og viljum við vinna áfram fyrir landsmenn á þeim grunni sem lagður hefur verið.

Framundan eru nýjar áskoranir, ný tækifæri – nýir tímar.

Traustur grunnur

  • erlendar skuldir ríkissjóðs hafa verið greiddar upp = eru meiri nú en nokkru sinni
  • skattar hafa verið lækkaðir á einstaklinga og fyrirtæki = verða eflaust hækkaðir aftur
  • háskólanemum hefur fjölgað úr 7.500 í 17.000 á síðustu 12 árum = gott mál
  • hagur heimilanna hefur almennt batnað um 60% frá árinu 1995 = mér skilst að við hverfum aftur til ársins 1994
  • atvinnuleysi sem áður var mikið vandamál er nú svo að segja óþekkt = verður meira en mikið vandamál
  • opinber framlög til heilbrigðismála hafa verið stóraukin og eru nú með með þeim hæstu í heiminum = gott mál
  • Ísland er komið í 2. sæti á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem lífskjör eru best í heiminum = ætli við náum topp 10 núna?

Nýir tímar

  • á traustum grunni byggjum við frekari framfarir, tryggjum fleiri tækifæri og örugga velferð = þar skjátlaðist ykkur hrapalega
  • bætum hag aldraðra með því að minnka tekjutengdar skerðingar á lífeyri = lífeyrinn er að miklu leyti horfinn
  • tryggjum að hér sé skattaumhverfi fyrirtækja og einstaklinga fyllilega samkeppnishæft við önnur lönd = hmm
  • eflum samgöngur um allt land með stórátaki í uppbyggingu vega og annarra samgöngumannvirkja = flott
  • stuðlum að uppsprettu nýrra tækifæra með góðri og fjölbreyttri menntun, vísinda- og rannsóknastarfi = flott
  • nýtum forskot okkar á aðrar þjóðir, íslenska sérþekkingu og hugvit, á sviði endurnýjanlegra orkugjafa = no comment
Í hvaða stöðu væri Ísland núna ef vinstri-menn hefðu verið í stjórn síðustu 12 ár? Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að við værum betur sett en við erum í dag! Núna þurfa vinstri-menn að taka við og þrífa upp skítinn eftir XD-sóðana!
En ég ætla að vona að ÍSLENDINGAR gleymi ALDREI þessari aðstöðu sem Sjálfstæðismenn hafa komið landanum í!!!!

Langar þig til Parísar?Bjarney Gunnarsdóttir

Ef þig vantar íbúð í París í sumar þá er

til leigu fyrir ferðamenn íbúð á besta stað í París. Þaðan er göngufæri að flestum vinsælustu ferðamannastöðum borgarinnar og mjög góðar samgöngur við alla borgarhluta.

Íbúðin er tæplega 50 fermetrar að stærð, með gott svefnpláss fyrir fjóra (vindsængur fyrir tvo til). Hún er á efstu hæð í gömlu og virðulegu húsi, með frábært útsýni til allra átta, fullbúin húsgögnum, áhöldum og tækjum.

Leiguupphæð er 700 evrur fyrir vikuna. Leigutími 1. júní til 7. september.

Sjá nánari upplýsingar og myndir á http://ibudiparis.blogspot.com

Andskotans valdapungar!!!Bjarney Gunnarsdóttir

Það eru til lögreglumenn sem engan veginn er treystandi í að sinna starfi sínu og halda uppi lögum og reglum. Það ætti að skjóta þá lögreglumenn í punginn sem beita saklausum almenningi ofbeldi!!!!!

Hvernig væri að HR. lögreglustjóri velji almenninlegt fólk í lið með sér en ekki einhverja andskotans valdapunga sem halda að þeir geti vaðið yfir allt og alla bara af því að þeir ganga í svörtum búningi með handjárn.

Ég vona að þessir menn fái rétta refsingu og lögregluvaldið hylji ekki yfir með þeim syndum sínum!!!!

Halló :)Bjarney Gunnarsdóttir

Það er spurning hvort ég byrji að blogga aftur!!! Ég ætla aðeins að melta það Óákveðinn

Fallegur morgun :)Bjarney Gunnarsdóttir

Já, það er víst svona sem morguninn lítur út Ullandi Ég er glaðvöknuð og klukkan bara átta og ég á ekki að mæta í skólann fyrr en kl. 10:20, samt er ég vöknuð. Þetta er MJÖG ólíkt mér!!!

En þetta er alveg kærkomið, gaman að sjá hvernig morgunbirtan er og gott að græða svona marga klukkutíma, dagurinn verður bara miklu lengri Hlæjandi Ég ætti kannski bara að gerast A-manneskja! Hmm...við sjáum nú til með það Ullandi

Annars eru bara mjög spennandi tímar framundan: Afmæli á næsta leiti, sumarið er komið og verður betra og betra með hverjum deginum og margt fleira spennandi Glottandi

Febrúarbloggið :)Bjarney Gunnarsdóttir

Já, ég ákvað að setja inn eitt blogg áður en mánuðurinn líður hjá og febrúar er náttúrulega svo stuttur að það er eins gott að það gerist núna! Ég er samt búin að komast að því að netið er alger tímaþjófur og það er endalaust hægt að hanga á því án þess að vera að gera eitthvað af viti eins og t.d. að blogga, sem er náttúrulega mjög nytsamlegt Ullandi
Annars var ég með alveg fullt af fréttum sem ég ætlaði að skrifa um en núna man ég ekki helminginn af því! Ég byrja bara og þá hlýtur það að rifjast upp Brosandi
Best að byrja á einu "skemmtilegu" sem ég lenti í núna um helgina. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég er tvisvar sinnum búin að hitta eitthvað fólk sem ég þekki ekki neitt en annaðhvort móðir mín eða amma þekkja og kynna mig fyrir. Þessar ágætu konur sem ég hitti létu það svo útúr sér hvað þær héldu að ég væri gömul og hvað haldið þið??? Önnur þeirra spurði "já, og hvað ert þú gömul? 14 ára?" hin var reyndar aðeins nær mínum raunverulega aldri og hélt að ég væri 17 ára!!! Svo fóru þær náttúrulega alveg í kút og þegar ég sagðist vera 23 ára! Híhí Hlæjandi Og þá sögðu þær "já, þú verður ánægð seinna að vera svona ungleg" Jújú, eflaust verð ég það og ég er svosem alveg vön að fólk haldi að ég sé yngri en ég er þannig að ég er bara pínu móðguð...allavegana með þetta 14 ára! Annars held ég líka að þetta sé komið til vegna þess að táningsstúlkur nú til dags eru alveg stífmálaðar skvísur þannig að ég í mínum íþróttagalla gæti alveg eins verið 6 ára og svoldið bráðþroskuð Ullandi
Ég tók svo þátt í minni fyrstu þríþrautarkeppni núna um daginn, 400 m sund - 10 km hjólreiðar og 2.5 km hlaup. Það gekk alveg ágætlega, allavegana kláraði ég keppnina þó svo að ég hafi ekki lent í neinu sæti! Ég verð víst að fara að æfa mig aðeins en það var mjög gaman að taka þátt Brosandi
Svo var ég að fá nýja úlpu, alveg æðislega Cintamani dúnúlpu Hlæjandi Hún er svo hlý og þægileg að ég hef varla farið úr henni og held að ég geri það bara ekki mikið Ullandi
Já, og núna er ég í sumarbústað hérna fyrir austan fjall með nokkrum vinum. Við erum svo skemmtileg að það eru 4 tölvur hérna með í ferðinni þannig að ég ákvað að nýta tækifærið og blogga Brosandi
Annars held ég að þetta sé orðið alveg nógu langt núna en kíkið endilega á nýju könnunina og látið í ykkur heyra í kommentum Svalur

Lífið á vatninu :)Bjarney Gunnarsdóttir

Þá er lífið komið aftur í sínar föstu skorður eftir jólafríið! Skólinn byrjaður og svona Brosandi Ég er alla vikuna á vatninu en kem heim um helgar! Það er alltaf jafn fínt að vera á vatninu og núna er ég flutt inn á vistina sem er bara æði Hlæjandi

Annars gerðust undur og stórmerki núna um helgina þegar ég horfði loksins á 10.seríu af FRIENDS Ullandi Ég er búin að fresta því í 2 ár að horfa á síðustu þættina því ég vildi aldrei viðurkenna að friends væri búið! En mér var skipað að horfa á þetta núna til að geta verið með í FRIENDS Scene It spili...sem er btw rosa skemmtilegt Hlæjandi Núna verð ég bara að byrja að horfa á vini mína aftur....það er náttúrulega hægt að horfa á þá aftur og aftur Brosandi Reyndar er fullt fullt af öðrum þáttum sem mig langar til að sjá m.a. Prison Brake, OC, Lost og fleiri sem ég hef aldrei séð en allir eru að tala um! Það ætti nú ekki að vera mikið mál þar sem við erum duglegir sjónvarpsgláparar hérna á vistinni á Laugarvatni Ullandi

Segjum þetta gott í bili Hlæjandi

GLEÐILEGT NÝTT ÁRBjarney Gunnarsdóttir

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna allir saman Hlæjandi Annars hef ég komist að því að ég er ekkert alltof hrifin af áramótum! Þá er maður aðeins minntur á það enn og aftur hvað tíminn líður hratt og að á nýja árinu verði maður heilu ári eldri en maður var! Þetta er nú engin svaka speki hjá mér og ég er ábyggilega ekki að segja ykkur eitthvað nýtt Ullandi Svo er náttúrulega líka hægt að líta á nýja árið sem upphafið af einhverju nýju og stórmerkilegu. Setja sér allskonar áramótaheit um bætt og betra líf...hvernig maður ætli sér að verða betri manneskja...fara í megrun, hætta að reykja, vera góður við nágrannann, hætta þessu og hætta hinu og svoleiðis sem maður heldur kannski út í eina viku (mánuð þeir sem eru mjög duglegir)! Ég ætla svosem ekki að alhæfa neitt og það eru eflaust einhverjir sem standa alveg við áramótaheitin sín þó svo að ég geri það ekki og þess vegna er ég líka löngu hætt að setja mér áramótaheiti!!
Annars fékk ég sent svona sms skeyti þar sem stóð "life is short, forgive quickly, kiss slowly, laugh and love uncontrollably and never regret anything that madu you smile"  Þetta er náttúrulega pínu væmið en samt er eflaust eitthvað til í þessu og kannski ekki vitlaust að hafa þetta í huga!
Jæja, ég veit ekki hvað ég er að blaðra þetta....ég ætlaði bara að segja gleðilegt nýtt ár Brosandi

Au revoir Reykjavík, bonjour Paris :)Bjarney Gunnarsdóttir

Ég sit hérna á flugvelli Leifs Eiríkssonar og bíð eftir flugvélin mín fari af stað til Parísar. En fyrir þá sem ekki vita þá ætlum ég og bræður mínir og amman vera úti í París um jólin og áramótin hjá pabba Brosandi Stuð stuð Hlæjandi En það er víst vissara fyrir mig fara rifja upp frönskuna aðeins...held ég orðin svoldið riðguð í henni!
Ég segi þetta gott í bili en það er aldrei vita nema ég hendi inn svona eins og einni færslu frá París! Annars óska ég ykkur bara öllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best, njótið góða matarins, konfektsins, ljósanna og allt það sem jólin hafa upp á bjóða
Brosandi

(Vá, hvernig nennti ég þessum rauðu+grænu orðum til skiptis...gat bara ekki hætt á miðri leið
Ullandi)

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Bjarney Gunnarsdóttir
  • Staður: Reykjavík og Laugarvatn
  • Atvinna: Nemi og þjálfari
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Áhugaverðar síður

Könnun

Hver ertu?